Fara á efnissvæði

20. - 22. september 2024

Ungt fólk og lýðræði

Velkomin á Ungt fólk og lýðræði 2024

Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði fer fram dagana 20. - 22. september 2024 að Reykjum í Hrútafirði. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Ungt fólk og lýðheilsa sem vísar til félagslegrar-, andlegrar- og líkamlegrarheilsu.

Ungt fólk sem hefur komið á ráðstefnuna í gegnum árin segir hana haft afar góð áhrif. Fólk hafi aukið félagslega hæfni sína og lært að vinna með gildi eins og samstöðu, lýðræði og vináttu. Þátttakendur hljóta tækifæri til að mynda sér skoðanir og koma þeim á framfæri við jafningja og ráðafólk. Viðburðurinn gefur þannig þátttakendum tækifæri til að hlusta á ólíkar upplifanir og sjónarmið, brjóta ísinn í samskiptum við aðra og fara út fyrir þægindarammann. 

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Hellings hópefli og samvera. Kynningar með mögnuðum fróðleik. Uppörvandi og hvetjandi vinnustofur, samtal við ráðamenn, kvöldvökur og önnur skemmtilegheit.

Smelltu hér til þess að skrá þig!

Skráning er hafin og stendur til 11. september. Fjöldi er takmarkaður svo fyrirhyggja er best!

Smelltu hér til þess að skrá þig!
Takmarkaður fjöldi

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður svo það borgar sig að bíða ekki of lengi með skráningu. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í gjaldinu eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum sem þátttakendur eru hvattir til þess að nýta sér. Fyrir þau sem ekki geta nýtt sér rútuna er hægt að sækja um styrk fyrir ferðakostnaði til UMFÍ. Skila þarf inn kvittunum á sérstöku eyðublaði sem sent verður út eftir viðburðinn.

Athygli er vakin á því að viðburðurinn er með öllu vímuefnalaus, á það einnig við um rafsígarettur og nikótínpúða.

Skráning

Ekki þarf að vera í ungmennaráði eða ákveðnu félagi til þess að koma. Ráðstefnan er fyrir öll ungmenni á aldrinum 15 - 30 ára. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja ungmennum undir 18 ára aldri.